Skinn
Skrifað á uppskafning af latínuhandriti, sem hefur verið með stóru letri og skrautlegum upphafsstöfum.
Bls. i-iv skrifaðar af öðrum.
Stórir og skrautlegir upphafsstafir dregnir í litum, gulum, rauðum, grænum og bláum, í upphafi bálka.
Mynd af hangandi manni í upphafsstaf Þjófabálks, bls. 274.
Fyrirsagnir skrifaðar með rauðu bleki, og víða dregið með rauðum lit í upphafsstafi í lesmáli.
Bundið í pappaspjöld klædd svörtu alskinni með einföldu gylltu skrauti.
Á bls. 364 standa þessi nöfn og fróðleikur um eigendur:
„Þorkatla Finnsdóttir á þessa lögbók með réttu en enginn annar. Anno 1635. Torfi Finnsson með e. h.“
„Eign Einars Þórólfssonar.“
„Nú er hún að réttum erfðum eign Finns Þórólfssonar. Það vottar Jón Torfason M. E. H. Gildir hundrað hvör hana kaupir eður eignast af honum.“
„Þessa lögbók fæ ég undirskrifaður eruverðum höfðingsmanni og mínum elskulegum bróður Jóni Torfasyni til fyllilegrar eignar, til merkis mitt nafn, að Múla á Skálmarnesi þann 27 Decembris, Anno 1659. Finnur Þórólfsson M[anu] Propria.“
„Þessa lögbók á ég Erlindur Gunnlaugsson.“
Innan á fremra spjaldi er úrklippa úr prentaðri söluskrá.
Á fremra skjólblaði stendur: „Brought by Dr. Richard Bright (after whowm Bright disease is named) when he accompanied Hooker on his Icelandic Travels in 1818-20.“ Ef til vill hafa upplýsingar skolast þarna til en Richard Bright ferðaðist til Íslands árið 1810 í leiðangri Georges Mackenzie og gæti hafa eignast handritið þá.
Handritið er í eigu John Rylands bókasafnsins í Manchester en þangað var það keypt af Bernard Quaritch bóksala í Lundúnum í janúar 1919 fyrir 100 sterlingspund..
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 29. apríl 2025. Byggt á skráningu Ólafs Halldórssonar, sjá Skrá yfir íslenzk handrit í Cambridge, London, Manchester, Leeds og Dublin.
[Ext] (Spine)
[Ext] (Head-Edge)
[Ext] (Fore-Edge)
[Ext] (Tail-Edge)