Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Icelandic MS 1

Rímbegla og fleira ; Ísland, 1473

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-38r)
Tímatalsritgerð
2 (38v-47r)
Um helgihald og messur
Efnisorð
3 (47r-48r)
Um hvaða sálma skuli syngja eftir því hvers biðja skal
Efnisorð
4 (48v-66r)
Um manninn, líkama hans og eðli, og að þekkja lunderni hans af sköpulagi
5 (66v-78r)
Kalendarium
6 (78v-79r)
Talbyrðingur (páskatafla)
7 (79v)
Skýringar við töflu um að finna hversu margir dagar eru milli jóladags og fyrsta sunnudags í föstu
Athugasemd

Taflan hefur verið á bl. 80r en er skafin út.

8 (89r)
Um sektir á broti við föstuhaldi
Athugasemd

Að nokkru skafið út.

Efnisorð
9 (89v-90r)
Tímatal og um ævi Adams
Athugasemd

Lokin á bl. 90 skafin út.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Skinn.

Blaðfjöldi
iii + 95 + ii blöð (79-81 mm x 58-60 mm). Auð blöð: 80-88 og 90-95.
Tölusetning blaða

Þrjú fyrstu og tvö síðustu blöðin ótölusett, hin tölusett 1-95 með bleki af bókaverði.

Kveraskipan

Tólf kver.

  • Kver I: Blöð 1-8, 8 blöð.
  • Kver II: Blöð 9-16, 8 blöð.
  • Kver III: Blöð 17-24, 8 blöð.
  • Kver IV: Blöð 25-32, 8 blöð.
  • Kver V: Blöð 33-40, 8 blöð.
  • Kver VI: Blöð 41-48, 8 blöð.
  • Kver VII: Blöð 49-55, 7 blöð, bl. 49 stakt, eyða á eftir bl. 55.
  • Kver VIII: Blöð 56-63, 8 blöð.
  • Kver VIX: Blöð 64-71, 8 blöð.
  • Kver X: Blöð 72-79, 8 blöð.
  • Kver XI: Blöð 80-87, 8 blöð.
  • Kver XII: Blöð 88-94, 7 blöð, bl. 93 stakt.

Umbrot

Ástand

Stórt skarð er í bl. 31, en textinn er heill.

Skrift hefur verið skafin af bl. 80r, 88r-v, 89r, l. 4-11 og 90r.

Skrifarar og skrift
Fjórar hendur; skrifarar óþekktir.

I. Bl. 1r-47r: Óþekktur skrifari

II. Bl. 47r-63v: Óþekktur skrifari

III. Bl. 64r-66r: Óþekktur skrifari

IV. Bl. 66v-90r: Óþekktur skrifari

Band

Bundið í pappaspjöld klædd pergamenti með mjög stóru latínuletri (brot af blaði úr messusöngsbók)

Fremsta og aftasta blað eru skjólblöð úr pappír, en þriðja fremsta blað og tvö næstöftustu hafa að líkindum verið límd innan á spjöld í eldra bandi. Næst aftasta blað er einungis ræma, 2-2,8 cm breið.

Tvö fyrstu skinnblöðin (ótölusett saurblöð 2-3) hafa verið áföst við önnur tvö, sem hafa verið skorin úr handritinu. Á ræmu sem er eftir af öðru blaðinu er skrifað: 30. Ef síðara blaðið af þessum tveimur hefur límt innan á spjald hefur röð þessara blaða verið breytt þegar handritið var síðast bundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, fyrir og um 1473.
Ferill

Á bl. 89v eru talin ár frá upphafi heims: vj M vetra / og c. fímtigir og viiij en frá holdgan vors herra iesu christi / M. ccc. lxxiij. Þetta virðist skrifað af sama manni og kalendaríið (fjórða hönd).

Á fyrsta ótölusetta skinnblaði (v) stendur: Finnur Jónsson, skrifað ofan í annað sem hefur verið skafið út.

Handritið var áður AM 462 12mo í Árnasafni og er lýst í handritaskránni frá 1731. Ekki er vitað hvenær handritið hvarf úr Árnasafni, nema að það hefur gerst fyrir miðja 19. öld. Árið 1870 var það selt á uppboði í Lundúnum með bókum Þjóðverjans F. G. H. Culemanns, þar sem F. S. Ellis, fornbókasali í Lundúnum, keypti það. Það var til sölu hjá honum 1872 fyrir 24 sterlingspund, en skömmu síðar hefur jarl af Crawford keypt það í bókasafn sitt, Bibliotheca Lindesiana. John Rylands bókasafnið keypti handritasafn jarlsins af Crawford 1901, þar á meðal handritin sem hafa safnmörkin Icelandic MS 1-4.

Handritið er í eigu John Rylands bókasafnsins í Manchester.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 25. nóvember 2024. Byggt á skráningu Ólafs Halldórssonar, sjá Skrá yfir íslenzk handrit í Cambridge, London, Manchester, Leeds og Dublin.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu
Handritið var myndað í Manchester 2024 og afrit af myndum afhent Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni til birtingar á handritavef safnsins.
Lýsigögn
×

Lýsigögn