Sannar sögur af nokkrum merkilegum fornaldarmönnum. Skrifaðar í flýtir í vertrarhjáverkum 1837 og 1838. (Fremra saurblað 2r)
„Saga Kajus Július Cæsars Dictators“
„Hér eftir læt ég fylgja nokkra seinni tíða söguþætti, og þó þeir séu ei jafn merkilegir sem undanfarin saga, þótti mér þó allvel hæfa að rita þá hér, til að sýna mismun þann sem er á atferli og þekkingarhætti manna frá því er var á fyrri öldum. Þar til eru þættir þessir á Norrænu snaraðir af sama fræðimanni og næsta saga fyrir framan. (217v)“
Pappír
Gömul blaðsíðumerking 2-124 (1v-62v), 2-362 (63v-217r).
Á fremra saurblaði 2r er titill með hendi Einars Bjarnasonar.
Á fremra saurblaði er athugsemd um ritun handritsins: „Sögubók þessa hefi ég skrifað í flýtir á helgidagakvöldum og nóttum, og alla eftir eiginhandriti, þeirra manna er sögunum hafa af dönsku á íslenska tungu snúið, og hefi ég fylgt þeirra ritmáta og stafsetningu, en þess vil ég geta að Cæsars sögu, sem er, síðsta söguverk sýslumanns sál. Espólíns, bar ég að nokkra saman við þá dönsku sögu sem hann hafði fyrir sér, og jók því inní sem hann hafði undan felt er af nokkru var merkilegt; einnig hefi ég bætt við fáeinum skýringargreinum, sem standa á spássíum bókarinnar. Og er vísast til hvað við eiga með bókstaf, en hitt sem í söguna á að innsetjast er oftast auðkennt með litlu merki. Víða hvar hefi ég sett áherslumerki, yfir hörðum hljóðstöfum, í manna- og staðanöfnum, þar þau ekki voru í þeirri bók sem ég eftirritaði, má þó vera mér hafi víða gleymst að setja þau. Þann 18. mars 1849. Einar. frá. Starrastöðum.“ (Fremra saurblað 2v)
Á fremra saurblaði 2v er efnisyfirlit með hendi Páls Pálssonar stúdents.
Skinnband með spennum.
Guðmundur Einarsson sýsluskrifari, gaf Reykjavíkurdeild Hins íslenska bókmenntafélags 1865.
Áður ÍBR. A. 27.
Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.
Örn Hrafnkelsson frumskráði fyrir myndvinnslu, 19. október 2009 ; Handritaskrá, 3. b.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi , bls. 207.
Myndað fyrir handritavef í október 2009.