Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

ÍB 101 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1823

Tekstens sprog
islandsk

Indhold

1 (1r-1v)
Villuletur og spakmæli
Bemærkning

Án eiginlegs titils í handriti en á 1r er ártalið 1823 (og 1824?) og eins konar villuletur, eitthvað e.t.v. stytting á nafni skrifara

Á blaði 1v eru spakmæli

Tekstklasse
2 (2r-4r)
Fáfræði
Rubrik

Ignorantia

Incipit

Rámur svanurinn meinast mest

Kolofon

S. Níelsson stúdent, J. Níelsson indoctus. 1824 (4r)

Bemærkning

Skopvísur, skrifað með annarri hendi úti á spássíu; Lygilof, skrifað með annarri hendi ofan við.

Vantar framan af, kvæðið merkt nr. 2.

Tekstklasse
3 (4r-4v)
Virðingartitlar og spakmæli
Rubrik

Titlar eru það mesta ranglæti manna á meðal

Kolofon

S. Níelsson (4v)

Tekstklasse
4 (5r-39r)
Gull-Þóris saga
Rubrik

Sögu-brot af Gullþórir

Kolofon

Sögubrotið af Gull-Þóri er ein sú snotrasta mergmesta saga af svo stuttum Íslendinga þáttum, en henni fylgir stór galli, að vort fósturland ber hana ei alla með sér svo ég til viti. En þetta nú skrifaða brot er að miklu leyti af undirskrifuðum að orðfæri lagfært og innsett i Den Ofornuftige [sic] Vinter svo sem til skemmtunar fróðleik stundandi fáfróðum! Einnig er mér sem er plássinu kunnugur nálægt Þorskafirði skemmtun að svoddan riti. Því kann ég með nokkurri vissu segja hvar Rauðsdalur, Askmannsstaðir og Varðafell er, einnig Þorgeirsstaðir, Grímkelsstaðir, Uppsalir höfðu sitt pláss, sjálfsagt Þórisstaðir m.m. en allir þessir bæir eru fyrir löngu niður felldir og eyddir. Það pláss er þó merkilegt sem forfeður vorir útvöldu. Þeir voru sumir tryggir, þá skal ég lofa. Snartatungu þann 10da apríl 1824. Sá er skrifaði! (5v)

Bemærkning

Neðan við Sögu-brot stendur: Þorskfirðinga.

Á blaði 4v eru athugasemdir um Gull-Þóris sögu.

Brot.

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír

Vatnsmerki

Antal blade
i + 39 + ii blöð (204 mm x 83 mm)
Foliering

Gömul blaðsíðumerking [1]-2 (1), 15-22 (2-5), 25-52 (6-19), 61-99 (20-39r)

Tilstand

Milli blaða 1 og 2 vantar 6 blöð (bls. 3-14) úr 8 blaða kveri. Milli blaða 4 og 5 hefur verið fjarlægt (óskrifað?) blað sem hefur verið blaðsíðumerkt 21 og 22. Því hefur á blaði 5 eldra blaðsíðutali 23 verið breytt í 21 og eldra blaðsíðutali 24 í 22. Næsta blað á eftir (6) er hins vegar með óbreytt blaðsíðutal, 25 og 26 o.s.frv. Ekkert blað er því blaðsíðumerkt 23 og 24. Á milli blaða 19 og 20 sýnist hálft kver (4 blöð (óskrifuð?), bls. 53-60) hafa verið burt numin. Úr 14 blaða aftasta kveri handritsins hafa 4 öftustu blöðin (óskrifuð?) verið numin burt.

Aftara saurblað 1r-v hefur losnað frá og liggur nú laust með

Skrifttype
Ein hönd ; Skrifari:

Jón Níelsson [í Snartartungu, síðar í Grænanesi]

Í handritaskrá segir: "Kver m. h. Jóns Níelssonar […] (ekki m. h. síra Sveins, bróður hans, eins og talið hefir verið, þótt nafn hans sjáist hér og þar um hdr.)".

Udsmykning

Bókahnútar: 39r

Tilføjelser

Á fremra spjaldblaði (1v) er brot úr bréfi, sem og á götóttu fremra saurblaði (1r-v).

Á aftara saurblaði (1r) er [með annarri hendi] þyngdarútreikningur og: Þessi bók er afskrifuð eftir pappírsbók í 4to sem rituð var eftir skinnbókinni nobile.

Á aftara saurblaði (1v) er brot úr bréfi.

Aftara saurblað (2) úr prentaðri bók á dönsku.

Spássíugreinar á stöku stað.

Indbinding

Skinnband með tréspjöldum. Kjölur upphleyptur.

Historie og herkomst

Herkomst
Ísland 1823
Proveniens

Eigendur handritsins: Helga Jónsdóttir (39v)

G.G. Sigurðsson (1850) (39v)

Erhvervelse

Jón Þorkelsson rektor, 1897

Yderligere information

Katalogisering og registrering
Eiríkur Þormóðsson lagfærði 11. juni 2009 ; Handritaskrá, 3. b. ; Sagnanet 16. oktober 1997
Bevaringshistorie

Athugað 1997

[Metadata]
×

[Metadata]