Skorið hefur verið ofan af blaði og einnig af spássíum á hliðum. Blaðið hefur verið haft í hand og bl. 1v er afar máð og illæsilegt. Í hægra horni niðri á bl. 1r er þráður enn fastur í blaðið. För eftir saumgöt sjást á flipum sem eru fyrir miðju á vinstri og hægri hlið blaðsins.
Skrifarar og skrift
Óþekktur skrifari.
Skreytingar
Bláir og rauðir upphafsstafir.
Rautt dregið í smærri upphafsstafi
Rauðar fyrirsagnir
Uppruni og ferill
Uppruni
Blaðið var í bandi á AM240 8vo, sbr. Katalog (II:462): „Indhæftet i omslag af beskrevet perg. fra et tospaltet, latinsk kirkeligt hskr." Það var fjarlægt úr bandi við viðgerð í Kaupmannahöfn 1983 og var bundið inn í sérstakt hefti með fleiri blöðum úr bandinu.