„Eðla göfugur og hávísi herra lögmann Sigurður Björnsson minn mikilsvirðandi herra og föðurlegur velgjörðamann …“
Bréf sr. Ólafs Péturssonar til Sigurðar Björnssonar lögmanns um að Þórður Magnússon í Vestmannaeyjum skuli skikkaður til að snúa aftur til sinnar ektakvinnu, Guðrúnar Ingjaldsdóttur í Útskálakirkjusókn, sem hefur ekki séð hann í sjö ár, dags. 20. september 1699. Í framhaldi af bréfi sr. Ólafs kemur bréf Sigurðar til Ólafs Árnasonar, sýslumanns í Vestmannaeyjum, um þessa skikkun, dagsett sama dag. Á 2v er utanáskriftin „Bref hr. lögmannsins uppá Þórð Magnússon“
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki: fangamark CDG (IS5000-DIF-LXXVI-k4-wm1). Stærð: 14 x 37 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 50 mm.
Notað í 1699.
I (1r): Ólafur Pétursson, fljótaskrift.
II (1r-1v): Sigurður Björnsson, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus seðill, sennilega með hendi Árna Magnússonar þar sem gefnar eru upplýsingar um framhald málsins sem bréfinu viðkemur. Þar kemur fram að Þórður hafi aldrei yfirgefið Vestmannaeyjar og að Guðrún sé látin. Á sama seðli er yfirstrikaður texti sem segir m.a. „Exemplari sem Ásta kona sr. Ólafs Eyjólfssonar hafði með sér fært frá Alger til Vestmannaeyja“.