Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,G,1-4

Fjögur skjöl er varða Ásbjörn Guðmundsson í Ólafsvík

Tungumál textans
íslenska (aðal); þýska; danska

Innihald

1 (1r-2v)
Fjögur skjöl er varða Ásbjörn Guðmundsson í Ólafsvík
Efnisorð
1.1 (1r)
LXXVI,G,1. Kaupmáli
Upphaf

Í nafni heilagrar þrenningar framfór og var auglýstur og staðfestur slíkur gjörningur og skilmáli til löglegs ektaskapar undirbúnings …

Athugasemd

Afrit af kaupmála milli Ásbjarnar Guðmundssonar og Orms Vigfússonar, sem gefur Ásbirni dóttur sína Guðrúnu, dags. 2. júní 1649.

Fyrir neðan afritið votta Páll Bjarnarson og Halldór Guðmundsson að rétt hafi verið eftir frumbréfi ritað í Ólafsvík þann 18. maí 1674.

1.2 (1v-2r)
LXXVI,G,2. Gjafabréf
Upphaf

Wi denn hellige treføldigheds Nafnn Amen: Denn ypperlige …

Athugasemd

Afrit af gjafabréfi Ásbjarnar Guðmundssonar til Friðriks þriðja Danakonungs, dags. 19. nóvember 1663. Með hendi Jóns Steinþórssonar.

Með fylgir seðill, merktur með blýanti „ad LXXVI G2“, þar sem Sigurður Jónsson vottar að rétt sé ritað eftir frumbréfi þann 23. maí 1690. Fyrir neðan það vottar Bent(?) Lauritzson það sama, dags. 27. maí 1690 og loks vottar Brynjólfur Erlingsson það sama, sama dag.

1.3 (1r-1v)
LXXVI,G,3. Eignaskrá
Upphaf

Eftir því að sálugi Ásbjörn Guðmundsson er nú fyrir tímanlegan dauða afgenginn, og af drottni burt kallaður af þessari veröldu þann 16. decembris eftir sínum guðdómlegum vilja …

Athugasemd

Eignaskrá, frumbréf, undirritað af Jakobi Benediktssyni, Guðrúnu Ormsdóttur, Sigurði Halldórssyni, Þorgils Jónssyni og fleirum, dags. 22. desember 1673.

Á 2v er utanáskriftin „Guðrún Ormsdóttir udi Ólafsvík og langinde SC: Ásbjörn Guðmundsson anno 1673“.

1.4 (1r-2r)
LXXVI,G,4. Eignaskrá
Upphaf

Anno 1674 þann 7 febrúarí kom æruverðugur Jakob Benediktsson konglig majestats sýslumaður yfir Snæfellsnesssýslu í Ólafsvík að sjá og yfirskoða …

Athugasemd

Skrá yfir eignir Ásbjarnar Guðmundssonar sem Jakob Benediktsson sýslumaður og fleiri menn meta, dags. 7. febrúar 1674. Undir votta Jakob, Guðrún Ormsdóttir og þrír aðrir menn.

Á 2r er annar listi svipaðs eðlis, dags. 19. maí 1674.

Neðst á 2r er ritað með fjólubláum blýanti, sennilega af Guðmundi Þorlákssyni: „NB. Þetta bréfið hefur efl. verið skr. fyrst. (G.Þ.)“

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki 1: skjaldarmerki, ljón í tvöföldum hringi með kórónu, sverði og ör (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_1), bl. 1. Stærð: 107 x 78 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 73 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

  • Vatnsmerki 2: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes krossi, 3 hringir (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_2), bl. 2. Stærð: 90 x 49 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 67 mm.

    Vatnsmerki 2 (afbrigði) (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_5), bl. 5. Stærð: 88 x 47 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

  • Vatnsmerki 3: fangamark SF og kóróna í lárviðarsveig (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_3), bl. 3. Stærð: 80 x 78 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 89 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

  • Vatnsmerki 4: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes krossi, 3 hringir (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_4), bl. 4. Stærð: 103 x 56 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 72 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

Blaðfjöldi
Níu blöð (2+3+2+2) (320-326 mm x 203-210 mm) (seðillinn "ad LXXVI G2" er 140 x 173 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er breytilegur.
  • Línufjöldi er breytilegur.

Ástand
Texti þar sem blöð hafa verið brotin saman hefur stundum skemmst, sérstaklega í LXXVI G, 2 þar sem viðgerð hefur einnig að hluta til lýst upp blekið og gert það illlæsilegt.
Skrifarar og skrift
Níu hendur auk eiginhandaráritana.

I. G,1 (1r): Óþekktur skrifari, léttiskrift.

II. G,1 (1r): Sigurður Jónsson, fljótaskrift.

III. G,2 (1r-2r): Jón Steinþórsson, fljótaskrift.

IV. G,2 ad (1r): Sigurður Jónsson, léttiskrift.

V. G,2 ad (1r): Bent Lauritzson, léttiskrift.

VI. G,2 ad (1r): Brynjólfur Erlingsson, léttiskrift.

VII. G,3 (1r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

VIII. G,4 (1r-v): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

IX. G,4 (2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Með fylgir blað, brotið í tvennt, sem notað hefur verið sem umslag utan um hin blöðin. Á það er ritað með hendi Árna Magnússonar: „Documenter om Asbiørn i Olafsviig. Fra Jon Jonsson a lysehole.“

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Blöðin voru skrifuð á Íslandi 1673-1690.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 26. apríl 2017. ÞÓS skráði 16. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn