Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,G,1-4

Fjögur skjöl er varða Ásbjörn Guðmundsson í Ólafsvík

Tekstens sprog
islandsk (primært); tysk; dansk

Indhold

1 (1r-2v)
Fjögur skjöl er varða Ásbjörn Guðmundsson í Ólafsvík
Tekstklasse
1.1 (1r)
LXXVI,G,1. Kaupmáli
Incipit

Í nafni heilagrar þrenningar framfór og var auglýstur og staðfestur slíkur gjörningur og skilmáli til löglegs ektaskapar undirbúnings …

Bemærkning

Afrit af kaupmála milli Ásbjarnar Guðmundssonar og Orms Vigfússonar, sem gefur Ásbirni dóttur sína Guðrúnu, dags. 2. juni 1649.

Fyrir neðan afritið votta Páll Bjarnarson og Halldór Guðmundsson að rétt hafi verið eftir frumbréfi ritað í Ólafsvík þann 18. maj 1674.

Tekstklasse
1.2 (1v-2r)
LXXVI,G,2. Gjafabréf
Incipit

Wi denn hellige treføldigheds Nafnn Amen: Denn ypperlige …

Bemærkning

Afrit af gjafabréfi Ásbjarnar Guðmundssonar til Friðriks þriðja Danakonungs, dags. 19. november 1663. Með hendi Jóns Steinþórssonar.

Með fylgir seðill, merktur með blýanti „ad LXXVI G2“, þar sem Sigurður Jónsson vottar að rétt sé ritað eftir frumbréfi þann 23. maj 1690. Fyrir neðan það vottar Bent(?) Lauritzson það sama, dags. 27. maj 1690 og loks vottar Brynjólfur Erlingsson það sama, sama dag.

Tekstklasse
1.3 (1r-1v)
LXXVI,G,3. Eignaskrá
Incipit

Eftir því að sálugi Ásbjörn Guðmundsson er nú fyrir tímanlegan dauða afgenginn, og af drottni burt kallaður af þessari veröldu þann 16. decembris eftir sínum guðdómlegum vilja …

Bemærkning

Eignaskrá, frumbréf, undirritað af Jakobi Benediktssyni, Guðrúnu Ormsdóttur, Sigurði Halldórssyni, Þorgils Jónssyni og fleirum, dags. 22. december 1673.

Á 2v er utanáskriftin „Guðrún Ormsdóttir udi Ólafsvík og langinde SC: Ásbjörn Guðmundsson anno 1673“.

Tekstklasse
1.4 (1r-2r)
LXXVI,G,4. Eignaskrá
Incipit

Anno 1674 þann 7 febrúarí kom æruverðugur Jakob Benediktsson konglig majestats sýslumaður yfir Snæfellsnesssýslu í Ólafsvík að sjá og yfirskoða …

Bemærkning

Skrá yfir eignir Ásbjarnar Guðmundssonar sem Jakob Benediktsson sýslumaður og fleiri menn meta, dags. 7. februar 1674. Undir votta Jakob, Guðrún Ormsdóttir og þrír aðrir menn.

Á 2r er annar listi svipaðs eðlis, dags. 19. maí 1674.

Neðst á 2r er ritað með fjólubláum blýanti, sennilega af Guðmundi Þorlákssyni: „NB. Þetta bréfið hefur efl. verið skr. fyrst. (G.Þ.)“

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki 1: skjaldarmerki, ljón í tvöföldum hringi með kórónu, sverði og ör (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_1), bl. 1. Stærð: 107 x 78 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 73 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

  • Vatnsmerki 2: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes krossi, 3 hringir (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_2), bl. 2. Stærð: 90 x 49 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 67 mm.

    Vatnsmerki 2 (afbrigði) (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_5), bl. 5. Stærð: 88 x 47 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

  • Vatnsmerki 3: fangamark SF og kóróna í lárviðarsveig (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_3), bl. 3. Stærð: 80 x 78 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 89 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

  • Vatnsmerki 4: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes krossi, 3 hringir (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_4), bl. 4. Stærð: 103 x 56 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 72 mm.

    Notað frá 1673 til 1690.

Antal blade
Níu blöð (2+3+2+2) (320-326 mm x 203-210 mm) (seðillinn "ad LXXVI G2" er 140 x 173 mm).
Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er breytilegur.
  • Línufjöldi er breytilegur.

Tilstand
Texti þar sem blöð hafa verið brotin saman hefur stundum skemmst, sérstaklega í LXXVI G, 2 þar sem viðgerð hefur einnig að hluta til lýst upp blekið og gert það illlæsilegt.
Skrifttype
Níu hendur auk eiginhandaráritana.

I. G,1 (1r): Óþekktur skrifari, léttiskrift.

II. G,1 (1r): Sigurður Jónsson, fljótaskrift.

III. G,2 (1r-2r): Jón Steinþórsson, fljótaskrift.

IV. G,2 ad (1r): Sigurður Jónsson, léttiskrift.

V. G,2 ad (1r): Bent Lauritzson, léttiskrift.

VI. G,2 ad (1r): Brynjólfur Erlingsson, léttiskrift.

VII. G,3 (1r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

VIII. G,4 (1r-v): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

IX. G,4 (2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Tilføjelser

Með fylgir blað, brotið í tvennt, sem notað hefur verið sem umslag utan um hin blöðin. Á það er ritað með hendi Árna Magnússonar: „Documenter om Asbiørn i Olafsviig. Fra Jon Jonsson a lysehole.“

Indbinding

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Historie og herkomst

Herkomst
Blöðin voru skrifuð á Íslandi 1673-1690.
Erhvervelse
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 26. apríl 2017. ÞÓS skráði 16. juli 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 13. juni 2023.

Billeder

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

[Metadata]
×

[Metadata]