Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,51

Jarðakaupabréf

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

1 (1r-1v)
Jarðakaupabréf
Upphaf

Vi underskrefne Sal. Rigs Admiral Herre Hendrich Bielkes arfvinger …

Athugasemd

Afrit af jarðakaupabréfi dags. 15. mars 1688, þar sem erfingjar Henriks Bielke selja Christoffer Heidemann ýmsar jarðir.

Á eftir bréfinu fer vitnisburður á íslensku um að það hafi verið lesið upp í Lögréttu 3. júlí 1688. Undir hann hafa upprunalega skrifað: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson.

Þar á eftir er ódagsettur vitnisburður á dönsku sem Runólfur Þórðarson og Gísli Illugason hafa undirritað.

Sama bréf er afritað á bl. 3r-7r. Íslenski vitnisburðurinn fylgir á 7v. Á 7v-8r er vitnisburður á dönsku, dagsettur 5. júlí 1694, undirritaður af L. C. Gottrup.

2 (1v-2r)
Jarðakaupabréf fyrir Ingveldarstaði og Daðastaði
Upphaf

Jeg Christoffer Heideman Kongl. Majst Assessor udi Commercii Collegio …

Athugasemd

Afrit af jarðakaupabréfi dags. 28. júní 1690 þar sem Christoffer Heidemann selur Vilhjálmi Jónssyni og Þorkeli Jónssyni jarðirnar Ingveldarstaði og Daðastaði.

Vitnisburður á íslensku um að bréfið hafi verið lesið upp í Lögréttu 5. júlí 1690. Undirritað af Árna Geirssyni.

Vitnisburður á íslensku 14. júní 1703 um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi. Undir skrifa Gísli Ólafsson og Halldór Ólafsson.

Vitnisburður um landskuld, dags. 12. júlí 1703, undirritað af Vilhjálmi Jónssyni m.e.h. og Þorkeli Jónssyni m.e.h.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: skjaldarmerki Amsterdam (IS5000-DIF-LXXV-51). Stærð: 103 x 88 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 76 mm.

    Ekkert mótmerki.

    Notað frá 1688 til 1703.

Blaðfjöldi
Átta blöð (165-324 mm x 105-207 mm). Aftasta blaðsíðan auð.
Umbrot

  • Eindálka.

Ástand
Bleksmitun og blettir.
Skrifarar og skrift
Að mestu tvær hendur, auk eiginhandarundirskrifta.

Með hendi Árna Geirssonar alþingisskrifara, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi á árunum 1688-1703.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. mars 2017. ÞÓS skráði 23. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 12. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn