„Útcopium af afgreiðslubréfi Vigdísar Halldórsdóttur Anno 1607 þann 15. dag október“
„Fór svofelldur gjörningur fram í [… ]dal á fyrrnefndu ári og degi sem fyrr segir, í návist og að vitni þess fróma manns, síra Ólafs Jónssonar og þess heiðarlega manns Þórðar Jónssonar …“
Uppskrift af afgreiðslubréfi þar sem Vigdísi Halldórsdóttur er gert að afhenda Birni Magnússyni fyrir hönd Daða Bjarnarsonar 24 hundruð í Lambadal innri í samræmi við alþingisdóm sem Björn Magnússon las upp í umboði Daða (sjá Alþingisbækur Íslands IV: 45-46). Bréfið er dagsett 15. október 1607. Á 1v er utanáskriftin: Útskrift af afgreiðslu á Lambadal innra anno 1607.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1607 til 1627.
Óþekktur skrifari, blendingsskrift.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.