„Bréf Ögmundar biskups Pálssonar“
„Vér Ögmundur með Guðs náð, biskup í Skálholti, kunngjörum öllum mönnum með þessu voru opnu bréfi, að oss angrar mjög þær stóru lögleysur og miklar óhæfur, sem aukast fram úr öllum máta í þessu fátæka landi …“
Uppskrift af bréfi Ögmundar biskups Pálssonar til alþýðu manna í Skálholtsbiskupsdæmi gegn ýmsum óhæfum, svo sem hórdómum, manndrápum og að láta börn deyja úr hor og gegn öðrum stórsyndum. Dagsetningu vantar í uppskriftina en aðrar uppskriftir hafa 3. febrúar 1540. Skjalið er prentað í Íslenzku fornbréfasafniX, nr. 226, bls. 507-509.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1680 til 1730.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins C. 1530.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.