„Það gjörir ég, Þorleifur Magnússon, góðum mönnum viturlegt með þessu mínu bréfi, að ég hefi heyrt segja mér eldri menn þessi landamerki í millum Hóls og Selár …“
Stafrétt uppskrift Árna Magnússonar af vitnisburðarbréfi Þorleifs Magnússonar um landamerki millum Hóls og Selár á Skaga. Bréfið er dagsett 26. október 1476 en uppskriftin er gerð 26. janúar 1707. Á eftir uppskriftinni skrifar Árni um ástand bréfsins. Að rétt sé eftir frumriti skrifað kvitta Árni, Magnús Markússon rektor, Árni Gíslason og Þórður Þórðarson. Skjalið er prentað eftir frumriti í Íslenzku fornbréfasafniVI, nr. 88, bls. 90-91.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1707.
Árni Magnússon, textaskrift og fljótaskrift.
Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins 1476.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.