„Það bekennist að eg Jóhann Kruko með þetta mitt opna bréf, að eg hefi …“
„… fyrir þetta jarðakaupsbréf skrifað var í Berín, miðvikudaginn næstan fyrir festum sancti Gregorí paui, anno domini þúsund fimmhundruð tuttugu og níu.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 401, bl. 483-484. Reykjavík 1909-1913.
Jóhann Kruko selur Ögmundi biskupi í Skálholti þær jarðir og þá peninga sem Björn Þorleifsson seldi og fékk Hans Kruko, bróður Jóhanns, til fullrar eignar, sóknar og sekta fyrir 600 mörk í öllum flytjanda eyri, með þeim sölum er bréfið greinir (DI IX:483).
Skrifari er óþekktur.
Á blaði 1v með tveimur höndum: „kaupmalabref biskup augmundar og iokan kruko“ og „vm jardagoss hans kruku“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Innsigli er ekki varðveitt en innsiglisþvengurinn hangir við bréfið.
Bréfið var skrifað í Noregi.
Bréfið var skrifað í Björgvin 10. mars 1529.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.