Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVII,16

Kaupmáli ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kaupmáli
Upphaf

In nomine domini amen lýstist og staðfestist svo felldur kaupmáli …

Niðurlag

… á Holtastöðum í Langadal, föstudaginn næsta eftir messudag Matthíasar postula, ári seinna en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 387, bl. 466-467. Reykjavík 1909-1913.

Athugasemd

Kaupmáli vegna brúpkaups Koðráns Ólafssonar og Guðnýjar Brandsdóttur í Holti í Fljótum. Vottar að kaupmálanum voru Jón Arason biskup, séra Þorsteinn Jónsson, séra Þormóður Snorrason, séra Jón Brandsson, séra Grímur Jónsson, Þorsteinn Guðmundsson og Thómas Brandsson (DI IX:466).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (80 mm x 190 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 55 mm x 175 mm
  • Línufjöldi er 11.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi bréfritara: „festingar bref kodranar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Innsigli biskupsins er varðveitt og að auki hanga fjórir innsiglisþvengir við.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Brúðkaupið var haldið í Holti í Fljótum 30. ágúst 1528 en bréfið var skrifað á Holtstöðum í Langadal 25. febrúar 1529.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 21. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLVII,16
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Kaupmálar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Kaupmáli

Lýsigögn