„In nomine domini Amen. Svofelldur kaupmáli lýstur og staðfestur …“
„… á miðvikudaginn næsta eftir Pálsmessu um veturinn á þrítugsta ári og einu betur en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 358, bl. 436-437. Reykjavík 1909-1913.
Kaupmáli á brúðkaupsdegi Sveins Jónssonar og Halldóru Einarsdóttur. Innsigli fyrir setja Helgi ábóti á Þingeyrum, Þormóður Arason, Skúli Guðmundsson, Hallur Styrkárson og Jón Guðmundsson (DI IX:436).
Óþekktur skrifari.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Fjórir innsiglisþvengir hanga við bréfið en ekkert innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Kaupmálinn var gerður á Höskuldsstöðum á Skagaströnd 3. nóvember 1527 en bréfið var skrifað á Skarði í Langadal 1. febrúar 1531.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.