„Vér bróðir Ögmundur með guðs náð biskup í Skálholti gjörum góðum mönnum kunnigt með þessu …“
„… fyrir þetta kvittunarbréf skrifað í Skálholti ipso die sancti iheromini prestbiteri, anno domini þúsund fimmhundruð tuttugu og fjórir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 215, bl. 242-243. Reykjavík 1909-1913
Ögmundur biskup kvittar Ragnhildi Bjarnardóttur um skuldir Björns Guðnasonar heitins við Skálholtskirkju. Hún hefur goldið skuldina með ráði Torfa Björssonar, sonar hennar, og systra hans (DI IX:242).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Ragnhilldur lætur vte j ͨ c j jordum og xiiij ͨ betur fyrir misferle Biørns Gudnasonar“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 9 mm).
Innsiglið er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Skálholti 30. september 1524.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.