„Vér Ögmundur með guðs náð biskup í Skálholti gjörum góðum mönnum kunnigt með þessu …“
„… fyrir þetta jarðakaupsbréf, skrifað í sama stað, degi og ári síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 148, bl. 181-182. Reykjavík 1909-1913
Ögmundur biskup gerir jarðaskipti við Hólmfríði Erlendsdóttur þannig að hún fær til fullrar eignar jörðina Eyvindarmúla í Fljótshlíð en í móti fær hann jörðina alla Sandgerði er liggur á Rosthvalanesi [svo] (DI IX:181). Vottar að bréfinu voru séra Snorri Hjálmsson og Freysteinn Grímsson.
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „kaupbref fyrir mula í fliotshlyd“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Tveir innsiglisþvengir hanga við bréfið.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Samningurinn var gerður í Skálholti 10. nóvember 1523 en bréfið var skrifað á sama stað og degi, ári síðar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.