Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,10

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjöri eg Jón Þorsteinsson góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi að eg meðkennumst …

Niðurlag

… miðvikudaginn næsta fyrir festum Brigide virginis, árum eftir guðs burð þúsund fimmhundruð tuttugu og eitt ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 582, bl. 772-773. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Jón Þorsteinsson, sonur Þorsteins Sveinssonar og Bergljótar Halldórsdóttur, vitnar að Halla systir hans og Grímur Aronsson, eiginmaður hennar, leggja aftur jörðina Grafargil í Valþjófsdal, því að þau urðu uppvís að því að liggja saman löngu áður en þau gengu í hjónaband (DI VIII:772).

Sjá einnig AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,9

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (140 mm x 260 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 115 mm x 230 mm
  • Línufjöldi er 23.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari en sama hönd og á AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,9.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi: „Vitnis burdur ad grimur aronsson lagdi apttur jordina grafargil“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 370 mm x 9 mm).

Innsigli

Innsiglið er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Mýrum í Dýrafirði 30. janúar 1521.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 16. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn