„Það gjöri eg Ólafur Jónsson góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opnu bréfi …“
„… fyrir þetta vitnisburðarbréf gjört í Ögri í Ísafirði, mánudaginn næsta fyrir festum cathedra Petri apostoli, árum eftir guðs [burð] þúsund fimm hundruð tuttugu og eitt ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 585, bl. 775-776. Reykjavík 1906-1913
Ólafur Jónsson vitnar um að Grímur Aronsson hafði legið Höllu Þorsteinsdóttur löngu áður en þeirra eiginorð skyldi fullgjörast. Því gerðu foreldrar hennar, Þorsteinn Sveinsson heitinn og Bergljót Halldórssdóttir, ónýtan þann skilmála um fégjafir til hennar, sér í lagi um jörðina Grafargil í Valþjófsdal sem Þorsteinn hafði selt Halldóri Hákonarsyni (DI VIII:775). Sjá einnig AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,10
Óþekktur skrifari en sama hönd og á AM Dipl. Isl. Fasc. XLV,10..
Á blaði 1v með annarri hendi: „vitnisburdur vm grafargil“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Ekkert innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað í Ögri 18. febrúar 1521.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.