„Öllum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra senda Þorleifur Örnólfsson, Jón Narfason, Jón Björnsson lögréttumenn, Þorgautur Ólafsson, Ketill Þorsteinsson og Helgi Jónsson kveðju …“
„… hvert er gjört var og skrifað í Ögri í Ísafirði miðvikudaginn í temperviku um veturinn fyrir jól á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 491, bl. 641-645. Reykjavík 1906-1913
Dómur sex manna út nefndur af Birni Guðnasyni konungs umboðsmanni milli Geirhólms og Langaness um erfð eftir Kristínu Sumarliðadóttur, milli Gríms Jónssonar bónda, systursonar Kristínar, og Ara Andrésssonar bónda (DI VIII:641).
Skrifari er Björn Guðnason.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Ekkert innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Dómurinn var nefndur á Mosvöllum 27. nóvember 1517 en bréfið var skrifað í Ögri 16. desember sama ár.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.