Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,18

Lofunarbréf Björns Guðnasonar. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Lofunarbréf Björns Guðnasonar.
Upphaf

Vér Stephán með guðs náð biskup í Skálholti gjörum góðum mönnum kunnigt …

Niðurlag

… Og til sannenda hér um festum vér vort innsigli með þessara dándi manna innsiglum skrifað í sama stað, degi og ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 483, bl. 632-634. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Lofunarbréf og bókareiður Björns Guðnasonar við Stephán biskup (DI VIII:632).

Síðustu línur bréfsins eru með annarri hendi þar sem taldir eru upp vottar að gjörningnum en þeir eru: Narfi ábóti, bróðir Ögmundur í Viðey, Vigfús Erlendsson lögmaður, síra Einar Snorrason, og séra Helgi Jónsson.

Nokkrar afskriftir eru til af þessu bréfi, sjá DI VIII:632.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (177 mm x 215 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 96 mm x 165 mm
  • Línufjöldi er 19.

Ástand
Bréfið virðist skrifað á uppskafning.
Skrifarar og skrift

Óþekktir skrifarar.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „lofan biorns gudnasonar vid biskup stefan“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 9 mm).

Innsigli

Af sex innsiglum er eitt varðveitt og einn innsiglisþvengur að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Ögri 21. ágúst 1517.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 14. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,18
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn