Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,17

Dómsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Dómsbréf.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eða heyra senda bróðir Narfi með guðs náð, ábóti á Helgafelli, Grímur Snorrason officialis, Helgi Jónsson, Þorgils Nikulásson, Greipur Jónsson og Hallur Ögmundsson klerkar Skálholtsbiskupsdæmis, Eirekur Þorsteinsson, Brandur Einarsson, Eyjólfur Gíslason, Hrafn Guðmundsson, Jón Árnason og Halldór Þorgeirsson lögréttumenn …

Niðurlag

… Samþykkti þennan vorn dóm biskupinn og lögmaðurinn og settu sín innsigli með vorum fyrrnefndra dómsmanna innsiglum fyrir þetta dómsbréf hvert er skrifað var í sama stað og ári tveim dögum síðar en fyrr sagði.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 484, bl. 634-637. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Dómur sex klerka og sex lögréttumanna, útnefndur af Stepháni biskupi í Skálholti og Vigfúsi Erlendssyni lögmanni, um kærur Jóns Eiríkssonar prests til Jóns Einarssonar murta fyrir uppbrot, misþyrming og margt fleira. Jón murti er fundinn sekur af dómnum í öllum greinum (DI VIII:634).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (245 mm x 300 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 200 mm x 255 mm
  • Línufjöldi er 35.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Domr vm Jon Einarsson murta og sira Jon Eireksson“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (520 mm x 420 mm x 20 mm).

Innsigli

Sjö innsigli af tólf eru varðveitt, sum óheil, og tveir innsiglisþvengir að auki.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Ögri 22. ágúst 1517.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,17
  • Efnisorð
  • Dómar
    Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf.

Lýsigögn