Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLIII,6

Kvittunarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kvittunarbréf.
Upphaf

Það meðkennist eg Vigfús Erlendsson lögmann yfir allt Ísland að eg hefi …

Niðurlag

… þetta bréf skrifað á Hlíðarenda feria sexta quatuor temporum, anno domini þúsund fimmhundruð og sautján.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 487, bl. 638. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vigfús Erlendsson hafði umboð herra Andres Mus biskups í Ósló vegna skuldar Bjarnar Þorleifssonar en Ögmundur ábóti í Viðey hefur ábyrgst greiðslu á annarri lest skreiðar fyrir Björn næstu tvö ár og kvittar Vigfús Björn um skuldina (DI VIII:638).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (80 mm x 170 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 50 mm x 130 mm
  • Línufjöldi er 10.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Kvittvnar bref“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Tveir innsiglisþvengir hanga við bréfið en ekkert innsigli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Hlíðarenda 19. september 1517.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 13. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn