Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,24

Transkript tveggja bréfa og vitnisburður. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Transkript tveggja bréfa og vitnisburður.
Upphaf

Svofelldan vitnisburð ber eg Þorlákur Auðunarson að skógur sá sem liggur í Botnsdal …

Niðurlag

… hvert eð skrifað mánudaginn næstan fyrir krossmessu um haustið í Holti í Önundarfirði, árum eftir Guðs burð 1597.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 164 og 166, bl. 198-201. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Transkript tveggja bréfa. Hið fyrra er hið sama og á AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIX,24 (DI VIII:198).

Seinna bréfið er ekki til í frumriti og er vitnisburður Guðmundar prests Ólafssonar um Kirkjubólsskóg í Skutilsfirði. Guðmundur seldi Tómasi Jónssyni jörðina Tungu að fráskildum skógarparti Kirkjubóls (DI VIII:200)

Konráð Sigurðarson og Grímur Ólafsson votta að þeir hafa „séð og yfirlesið svo látandi tvö bréf með hangandi innsiglum orð fyrir orð sem hér fyrir ofan skrifað stendur“. Þeir festa sín innsigli við bréfið árið 1597.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (175 mm x 190 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 145 mm x 170 mm
  • Línufjöldi er 24.

Ástand
Nokkrir dökkir rakablettir eru á bréfinu.
Skrifarar og skrift

Óþekktir skrifarar. Uppskriftir bréfanna eru með annarri og eldri hendi en niðurlag bréfsins.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 20 mm).

Innsigli

Innsigli Konráðs og Gríms fylgja bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfin tvö eru frá 1508 en vitnisburðurinn dagsettur 12. september 1597 og skrifaður í Holti í Önundarfirði.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 26. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn