„Það gjörum vér Grímur prestur Þorsteinsson, Jón Sigmundsson og Þórólfur Ögmundsson góðum mönnum …“
„… þetta bréf hvert er skrifað í Ögri í Ísafirði föstudaginn næsta fyrir Jónsmessu baptiste um vorið á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 183, bl. 217-218. Reykjavík 1906-1913
Peningaskiptabréf þeirra Björns Guðnasonar og Kristínar Sumarliðadóttur eftir Jón (dan) Björnsson, eiginmann hennar, andaðan. Lögðu þau alla peninga fasta og lausa, kvika og dauða, fríða og ófríða til helminga. Tristram Búason og Björn Ólafsson votta einnig handaband Kristínar og Björns um samninginn (DI VIII:217).
Skrifari Björn Guðnason í Ögri.
Á blaði 1v: „Giorníngs bref þeirra Kristinar sumarlidadottur og biarnar vm sæbol“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).
Allir fimm innsiglisþvengir eru fastir við bréfið og þrjú innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið er skrifað í Ögri 23. júní 1508.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.