Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXIX,14

Kvittunarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kvittunarbréf.
Upphaf

Það gjörir eg síra Markús prestur Árnason góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opna bréfi …

Niðurlag

… fimmtudaginn eftir hvítasunnudag þá liðið var frá guðs burð þúsund fimmhundruð og átta ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 181, bl. 213. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Lýsing Markúsar prests Árnasonar um greiðslur Björns Þorleifssonar til Guðna Jónssonar fyrir atvist og fylgi að vígi Páls heitins Jónssonar (DI VIII:213).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (102 mm x 165 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 65 mm x 145 mm
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „vm hugar mott vit gudna þa pall heitinn var j hel sleiginn“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Innsiglið fylgir ekki bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað á Reykjahólum 15. júní 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 23. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn