Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIII,14

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Ólafur Guðmundsson, Helgi Jónsson og Ari Sigmundsson góðum mönnum viturligt með þessu voru …

Niðurlag

… á föstudaginn næsta fyrir dominica palmarum ári síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 135, bl. 155-156. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburðarbréf um samtal þeirra Einars Oddssonar og Björns Guðnasonar bónda um grip á eignum Einars er hann bar á Björn, en Björn þóttist hafa heimildir Einars fyrir (DI VIII:155).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (110 mm x 213 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 93 mm x 195 mm
  • Línufjöldi er 19.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).

Innsigli

Eitt innsigli af þremur er varðveitt, nokkuð skemmt, en allir innsiglisþvengirnir eru fastir við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Vitnisburðurinn varð 16. júlí 1507 en bréfið var skrifað í Ögri í Ísafirði 14. apríl 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 19. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn