Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIII,8

Kvittunarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kvittunarbréf.
Upphaf

Vér Narfi með guðs náð príor af Skriðuklaustri gjörum góðum mönnum viturligt …

Niðurlag

… þetta kvittunarbréf hvert skrifað er á Hlíðarenda í Fljótshlíð in octava apolostorum Petri et Pauli. Anno domini þúsund fimmhundruð sex.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 105, bl. 116-117. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Narfi príor á Skriðuklaustri kvittar Vigfús bónda Erlendsson um andvirði jarðarinnar Yztaskála undir Eyjafjöllum (DI VIII:116).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (75-85 mm x 142 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 60 mm x 110 mm.
  • Línufjöldi er 10.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „kuittun vpa yzta skala“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Innsiglið er dottið af en innsiglisþvengurinn er fastur við bréfið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið er skrifað á Hlíðarenda 6. júlí 1506.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 11. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn