Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVIII,3

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Guðni Jónsson, Þórólfur Ögmundsson, Þorleifur Aunólfsson, Jón Narfason, Tritram Búason, og Snorri Helgason …

Niðurlag

… í Ögri í Ísafirði á visitacio sancte marie anno domini þúsund fimmhundruð sex.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 103, bl. 114. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Vitnisburður sex manna um að Björn Guðnason hafi staðið síra Grími Þorsteinssyni officialis Skálholtskirkju í Vestfjörðum, reikningsskap Vatnsfjarðarkirkju upp á 120 vetur en eftir reikninginn staðinn hafi Stephán biskup í Skálholti tekið af honum stað þenna löglaust og með ofríki, sett Björn og fólk hans í bann og út af heilögu sakramenti svo að Björn varð að lofa að ganga frá garðinum (DI VIII:114).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (65 mm x 165 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 45 mm x 235 mm.
  • Línufjöldi er 9.

Skrifarar og skrift

Skrifari Björn Guðnason í Ögri.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „quittunar bref vpp a reikning skap vadzfiardar kirkiu“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (293 mm x 370 mm x 20 mm).

Innsigli

Öll sex innsiglin eru varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Ögri í Ísafirði 2. júlí 1506

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 11. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn