Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,27

Bókareiður. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Bókareiður.
Upphaf

Það gjöri ég Jón prestur Jónsson góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opna bréfi …

Niðurlag

… í Árnesi í Trékyllisvík festum beati thorlaci episcopi confessoris anno domini þúsund fimmhundruð átta.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVIII. nr. 214, bl. 256-257. Reykjavík 1906-1913

Athugasemd

Jón Jónsson tekur í umboði Ólafs Gilssonar prófasts á Ströndum bókareið af Jóni Dagstyggssyni um það að hann hefði aldrei hnykkt eða jarðvarpað, slegið eða dregið Einar heitinn Bjarnason, og að engri sinni tilverkan hefði Einar þurft að flýja samvistir við Þórkötlu konu sína (DI VIII:256).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (95 mm x 155 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 75 mm x 120 mm.
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Ekkert innsigli er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Árnesi í Trékyllisvík 23. desember 1508.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 10. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,27
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Bókareiður.

Lýsigögn