„Það gjörum vér Gottskálk með guðs náð biskup á Hólum, Magnús Árnason, Sæmundur Símonarson, Jón Finnbogason, Helgi Sigurðsson, Jón Sigvaldason leikmenn …“
„… setjum vér vor innsigli fyrir þett kaupbréf er skrifað var á Hólum í Hjaltadal á sama ári og degi sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 696, bl. 761. Reykjavík 1903-1907
Einar Hálfdánarson selur Pétri bónda Loptssyni hálfa jörðina Ytradal í Eyjafirði og hálft Kambfell fyrir alls fjóra tigi hundraða og jörðina Geldingsá á Svalbarðsströnd með þeirri grein, er bréfið hermir (DI VII:761).
Skrifari óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (367 mm x 292 mm x 20 mm).
Allir sex innsiglisþvengir eru á bréfinu og eitt innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Hólum í Hjaltadal 3. febrúar 1505.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.