Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,14

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Halldór Guðmundsson og Þorsteinn Jónsson og Guðrún Þormóðardóttir …

Niðurlag

… þetta vitnisburðarbréf er skrifað var á Stu(r)lureykjum á sama ári degi síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 638, bl. 687. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Vitnisburður að Einar Einarsson hafi slegið Einar Oddsson föður sinn liggjandi í sænginni og hrækt í andlitið á honum og aldrei hafi þeir um sæst, og aldrei sagðist Einar Oddsson gefa Einari syni sínum jörðina Arnbjargarlæk, nema hann færi að sínum ráðum (DI VII:687).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (110-122 mm x 155 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 100 mm x 134 mm.
  • Línufjöldi er 15.

Ástand
Béfið hefur verið brotið saman og er ljós lína með dökkum blettum í kring þvert yfir bréfið í miðju.
Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 293 mm x 9 mm).

Innsigli

Annað innsiglið er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Sturlureykjum eftir 3. maí 1504.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 9. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn