Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVII,6

Jarðakaupabréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Jarðakaupabréf.
Upphaf

Það gjörum vér Klemens Þorsteinsson, Jón Þorsteinsson og Sveinn Þorsteinsson bræður góðum mönnum viturligt …

Niðurlag

… miðvikudaginn í fardagaviku árum eftir Guðs burð þúsund fimm hundruð og fjögur ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 643, bl. 694-695. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Klemens, Jón og Sveinn Þorsteinssynir lýsa því að þeir hafi selt Birni Guðnasyni jörðina Hvallátur í Mjóafirði í Vatnsfjarðarþingum og kvitta hann um andvirðið (DI VII:694).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (82 mm x 210 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 60 mm x 168 mm.
  • Línufjöldi er 15.

Skrifarar og skrift
Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Ekkert innsigli er varðveitt en þrír innsiglisþvengir eru á bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Stærra-Breiðdal í Önundarfirði 22. maí 1504.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 8. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn