„Það gjörum vér Finnbogi prestur Einarsson, Stulli Magnússon, Jón Finnbogason, Hallur Erlendsson og Hallur Ásgrímsson, Einar Ólafsson, og Sveinn Eireksson góðum mönnum …“
„… innsigli fyrir þetta bréf skrifað í sama stað, dags og ári er fyrr segir. “
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 596, bl. 628-630. Reykjavík 1903-1907
Einar ábóti á Munkaþverá selur Guðmundi Þorleifssyni jörðina Ásgeirsvöllu í Skagafirði fyrir jörðina Tjarnir í Ljósavatnsskarði (DI VII:628). Annað frumrit á skinni sama efnis er AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,15
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v: „jardakaupsbref fyrir tíornum“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Átta innsigli hafa verið á bréfinu en ekkert þeirra er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið var skrifað á Munkaþverá 27. mars 1503.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.