Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,1

Kvittunarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kvittunarbréf.
Upphaf

Það gjöri ég Benedikt Histen hirðstjóri og höfuðsmann yfir allt Ísland góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opna bréfi …

Niðurlag

… á Bessastöðum mánudaginn næstan fyrir Þorláksmessu um sumarið árum eftir Guðs burð þúshundruð fimm og tvö ár.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 581, bl. 609. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Benedikt hirðstjóri Histen kvittar Vigfús Erlendsson um það tilræði, er hann veitti Þórði Brynjólfssyni í kirkjudyrunum eða kirkjugarðinum á Krossi í Landeyjum (DI VII:609).

Bréfið er læst saman við bréf Kristjáns konungs annars skrifað á Akurshúsi 28. maí 1510 AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,ad 1.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (85-90 mm x 200-205 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 76 mm x 160-165 mm.
  • Línufjöldi er 14.

Skrifarar og skrift

Skrifari er óþekktur.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).

Innsigli

Innsiglið fylgir bréfinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfs kemur fram að það var skrifað á Bessastöðum 18. júlí 1502.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 5. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn