„Það gjörum vér, Jón Narfason, Þorkell Þorkelsson, Ólafur Ófeigsson, góðum mönnum viturlegt …“
„… í Eyjafirði, fimmtudagin næsta fyrir translacionem Benedicti abbatis confessoris á sama ári sem fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 592, bl. 716. Kaupmannahöfn 1896
Íslenzkt fornbréfasafnV. nr. 222, bl. 235. Kaupmannahöfn 1899
Árni Einarsson fær Höskuldi Runólfssyní til fullrar eignar jörðina Grísará í Eyjafirði og kvittar fyrir andvirðið (DI III:716).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v eru skrifuð ártölin 1407 og 1461, og með annarri hendi orðin „vm grisaraa“ og aftur ártalið 1461. Einnig talan 94.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Þrjú innsigli eru fyrir bréfinu, nokkuð vel varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Bréfið er afskrift gerð 7. júlí 1461 af bréfi sem skrifað var í Núpufelli 26. maí 1407.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.