„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Sæmundur Þorsteinsson …“
„… vors virðuligs herra Ólafs með guðs náð Noregs, Dana og Gota konungs.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 362, bl. 427. Kaupmannahöfn 1896
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 93. Bréf nr. 78. København 1963.
Loptur Tjörfason og Þóra Nikulásdóttir kona hans selja Birni Einarssyni jörðina Fót í Seyðisfirði og handleggja aleigu sína í hans vernd og umboð.
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v stendur með 15. aldar hendi: "jard bref vm os ok fot". Önnur hönd frá um 1700 bætir við: "A 7de are Olafs kongs."
Umbúðir frá 1996 eða fyrr290 mm x 365 mm x 9 mm
Fjórar holur eru fyrir innsiglisþvengi en sennilega hafa aðeins þrjár verið notaðar þar sem í bréfinu kemur aðeins fram að þrír menn innsigli það. Öll innsiglin eru glötuð en einn innsiglisþvengur er varðveittur.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Reykhólum 10. maí 1388.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.