„In nomine domini amen. Var þetta kaup þeirra Örnólfs bónda Jónssonar …“
„… In profesto quintini martiris, tveimur árum síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 313, bl. 364. Kaupmannahöfn 1893
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 81. Bréf nr. 68. København 1963.
Örnólfr bóndi Jónsson selr með samþykki Herdísar konu sinnar Guttormi syni sínum hálfa jörðina Staðarfell á Meðalfellsströnd með öllum gögnum og gæðum. (Íslenzkt fornbréfasafn III:364).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v er ritað, með hendi frá 16. öld: „kaup bref fyrer stadar felle a medalfellzs straund ok kirkiunar gossi“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Fjórir innsiglisþvengir af sex eru varðveittir. Eitt innsigli er varðveitt en það er illa farið.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað að Staðarfelli í Hjarðarholti 30. október 1385. Það er afrit af bréfi frá 3 mars 1383.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.