„Það gjörum vér eftirskrifaðir menn Daði Árnason, Jón Sigurðsson, Þorkell Tumason …“
Vitnisburður um að Björn Benediktsson hafi greitt Sólveigu Þorgrímsdóttur fyrir jörðina að fullu. Gjörningurinn fór fram að Brennihóli í Kræklingahlíð 31. október 1614, en uppskriftin er frá 20. maí 1728.
Óþekktur skrifari, kansellískrift.
Undir uppskriftinni með fljótaskrift: Þetta bréf á kálfskinn er með 4 heilum hangandi innsiglum rétt kóperað eftir sínum original votta undirskrifaðir er koperuðu og saman lásu að Grenjaðarstað d. 20. maí 1728. Undir skrifa Magnús Þorvaldsson og Gísli Magnússon.
Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.
Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.
Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, 20. maí 1728.
Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftir sendar til Kaupmannahafnar árið 1720 en þessi hefur komið síðar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.