„Það gjörum vér Ólafur Benediktsson, Sveinn Ögmundsson, Þorkell Tumason, Magnús Gunnlaugsson góðum mönnum kunnugt …“
Sólveig Þorgrímsdóttir selur Birni Benediktssyni jörðina. Gjörningurinn fór fram á Einarsstöðum í Kræklingahlíð 3. október 1608 en uppskriftin var gerð á Grenjaðarstað 20. maí 1728.
Óþekktur skrifari, kansellískrift.
Undir uppskriftinni með fljótaskrift: Þetta bréf er með einu heilu hangandi innsigli og öðru löskuðu rétt kóperað eftir sínum original á kálfskinn votta undirskrifaðir er kóperuðu og saman lásu að Grenjaðarstað d. 20. maí 1728.. Undir skrifa Magnús Þorvaldsson og Gísli Magnússon.
Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.
Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.
Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, árið 1728.
Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftir sendar til Kaupmannahafnar árið 1720 en þessi hefur komið síðar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.