„Ex originali“
„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendir Steinmóður prestur Þorsteinsson kveðju …“
Steinmóður prestur Þorsteinsson endurnýjar umboð til Jóns bónda Björnssonar og Þorgerðar konu hans yfir eignum sínum norðan Öxnadalsheiðar og einkanlega Grenjaðarstað (sjá AM Dipl. Isl. Apogr. 3). Gjörningurinn fór fram að Möðruvöllum í Hörgárdal 1399.
Skrifað af Jóni Magnússyni, blendingsskrift.
Ártalið 1399 er skrifað efst í hægra horn bl. 1r.
Undir uppskriftinni með fljótaskrift: Bréfið er á kálfskinni, innsiglalaust, skorið neðan af, og sést ei hvert verið hafa.
Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.
Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.
Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, líklega á árunum 1702-1712.
Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftirnar sendar til Kaupmannahafnar árið 1720.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum December 07, 1977.