„Ex originali“
„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendir Steinmóður prestur Þorsteinsson kveðju …“
Steinmóður prestur Þorsteinsson gefur Jóni bónda Björnssyni og Þorgerði konu hans fullt umboð um næstu tólf mánuði og það lengur sem um semur, yfir öllum sínum eignum fyrir norðan Öxnadalsheiði og sérlega yfir Grenjaðarstað með öllu því sem þar stendur saman og til liggur. Gjörningurinn fór fram að Grenjaðarstað einni nóttu eftir Maríumessu í föstu anno domini 1398.
Skrifað af Jóni Magnússyni, blendingsskrift.
Ártalið 1398 er skrifað efst í hægra horn bl. 1r.
Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.
Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.
Seðill límdur á bl. 2r með upplýsingum um frumbréfið: Bréfið er á kálfskinni með einu aflöngu innsigli, nokkuð brotnu, og lýsingu á innsiglinu.
Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, líklega á árunum 1702-1712.
Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftirnar sendar til Kaupmannahafnar árið 1720.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.