Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Apogr. I,1

Dómsbréf um Steindyr í Grýtubakkasókn ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4v)
Dómsbréf um Steindyr í Grýtubakkasókn
Titill í handriti

Ex Originali

Upphaf

Öllum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra sendum vér Árni Magnússon …

Athugasemd

Dómsbréf Árna Magnússonar og fimm annarra er til voru nefndir af Ólafi Jónssyni, í umboði Hákonar Árnasonar, konungsumboðsmanns í Þingeyjarsýslu fyrir innan Fljót, að þeir dæma Ólafi Jónssyni jörðina Steindyr í Grýtubakkasókn fyrir skuld sem Ólafur átti hjá Þorsteini Bjarnasyni. Dómurinn fór fram á Grýtubakka síðasta dag maí 1604, en bréfið skrifað nokkrum dögum síðar.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
4 blöð (165 mm x 103 mm). Bl. 3v og 4r-v auð.
Kveraskipan
Tvö tvinn.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 128 mm x 70 mm.
  • Línufjöldi er 18.

Skrifarar og skrift

Skrifað af Jóni Magnússyni, blendingsskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Ártalið 1604 er skrifað efst í hægra horn bl. 1r.

Band

Í böggli með bréfauppskriftum 1-130.

Pakkað inn í brúnan umbúðapappír; hörð pappaspjöld að framan og aftan með þvengjum til að binda saman böggulinn. Framan á pappaspjaldi stendur Þingeyjarsýsla no 1-130 c. Safnmark á grænum miða á kili.

Innsigli

Fylgigögn

Seðill límdur á bl. 3r með upplýsingum um frumbréfið: Bréfið er á kálfskinni, með 6 innsiglum. Þrjú af þeim eru brotin, og lýsingum á innsiglunum.

Uppruni og ferill

Uppruni

Uppskriftin var gerð á Íslandi fyrir Árna Magnússon, líklega á árunum 1702-1712.

Ferill

Árni Magnússon fékk fornbréfauppskriftirnar sendar til Kaupmannahafnar árið 1720.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bögglinum 7. desember 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 14. febrúar 2017.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar - afrit
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Apogr. I,1
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Dómsbréf um Steindyr í Grýtubakkasókn

Lýsigögn