Einungis Kristindómsbálkur, kaflar 1-2. Bl. 1r autt.
Bl. 40v autt.
Handritið er mjög skaddað, miðhluti bl. 3-8 er fúinn og mörg önnur blöð rifin og götótt.
Leifar af rauðum upphafsstöfum og fyrirsögnum.
Skreytingar víða á neðri spássíu.
Handritið er í nýlegu skinnbandi og bundið í tvö bindi.
Í sérstöku hefti eru lausir bókstafir og á að opna það hefti sem allra minnst.
Hylki er utan um öll þrjú heftin. Sér í kápu er lýsing Jóns Sigurðssonar á innihaldi og gamalt band.
Fastur seðill (137 mm x 102 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Kristinréttur in octavo er ég fékk af Snæbirni - var í fyrstu frá Hvilft í Önundarfirði, frá Jóni Steindórssyni - Pálssyni á Alþingi 1704.“
Handritið er tímasett um 1500 (sjá ONPRegistre , bls. 465, og Katalog II , bls. 359).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. maí 1997.
Tekið eftir Katalog II , bls. 359 (nr. 2249). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1909. ÞS skráði 15. janúar 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í janúar 1976 til desember 1996.
Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgir með ásamt lýsingu á kveraskiptingu.