Bréfið er dagsett 15. janúar 1847. Sr. Guðmundur Einarsson hefur orðið við tilmælum nefndarinnar og sendir með bréfinu neðangreint efni. Bl. 1v og 2 eru auð.
Handritið hefur verið blaðmerkt nýlega með blýanti 1-14 auk 1bis og 2bis en fremsta tvinnið er ótölusett.
Seðill fylgir með greinargerð fyrir kveraskiptingu.
Með hendi Sr. Guðmundar Einarssonar, sprettskrift.
Bundið í pappaspjöld í október 1983. Líndúkur á kili. Saumað á móttök. AM 970 I-VII 4to er varðveitt í öskju. Gömul spjaldmappa fylgir.
Handritið var skrifað á Íslandi 1847. Það er tímasett til 19. aldar í Katalog II 1892:282.
AM 970 I-VII 4to var áður í eigu Det kongelige nordiske Oldskriftselskab. Það kom á Árnasafn í Kaupmannahöfn 1886 fyrir tilstuðlan Gísla Brynjúlfssonar.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 21. maí 1987.