„Prestatal í Meðallandi, mestan part eftir þeirri ávísan sem skrifuð finnst í Langholtskirkju Ministerialbók“
Röð presta frá byrjun 17. aldar til 1823. Tölusett 1-15. Bl. 1v autt.
Bréfið er undirritað: Langholti þann 21. júní 1847. Brynjólfur Árnason. Bréfritari nefnir þulur og segist senda með bréfinu Grýlukvæði ásamt litlu öðru smávegis. Þetta efni hefur líklega lent í handritinu DFS 67 sem varðveitt er í Dansk Folkemindesamling í Kaupmannahöfn (sjá Yelena Sesselja Helgadóttir, Alþýðleg fornfræði og Jón Sigurðsson forseti). Bl. 2v autt.
Bl. 1r er merkt með blýanti neðst í hægra horni: 6.
Með hendi séra Brynjólfs Árnasonar, snarhönd.
Bundið í hefti í júlí 1984, pappaspjöld, kjölur klæddur fínofnum líndúki. Handritið liggur í öskju með AM 960 I-XXIII 4to.
Handritið var skrifað á Íslandi 1847.
Handritin AM 960 I-XXIII 4to komu í Árnasafn í Kaupmannahöfn frá Det kongelige nordiske Oldskriftselskab (Hinu konunglega norræna fornfræðafélagi) 1883.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 5. júní 1987.