Á meðfylgjandi kápu greinir Árni Magnússon frá því hvaðan hann fékk handritið og að blöðin séu: ur Eddu, þeim partenum ſem ſumer kalla Hliodz grein.
Tvinn með hendi Árna Magnússonar sem inniheldur brotið: „Þessi 2 blöð voru utan um það litla rímkver, er ég fékk af mag[ister] Jóni Árnasyni 1724, en hann hafði fengið af Guðrúnu Ögmundardóttur í Flatey. Kverið er með hendi Jóns Finnssonar og innfestningen á kverinu voru gömul blöð úr Eddu, þeim partinum, sem sumir kalla Hliodzgedia[??].“
Handritið er tímasett til 15. aldar (sjá Katalog II , bls. 180, og ONPRegistre , bls. 464).
Árni Magnússon fékk frá magister Jóni Árnasyni 1724 en hann hafði fengið frá Guðrúnu Ögmundardóttur í Flatey.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. nóvember 1993.
Tekið eftir Katalog II , bls. 180 (nr. 1874). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 19. október 2001.
Viðgert og endurbundið í gamalt band í Kaupmannahöfn í apríl og maí 1993
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.