„Kroſs Kuædi af Kalldatarneſs Kröſsinum“
„Eg vil kueda vmm kröſsins dyrd ...“
Efst á bl. 1r er niðurlag annars efnis, 1 1/2 lína, útstrikað.
Á tvinni sem heldur utan um handritið er Skjaldarmerki Amsterdam.
Blaðsíðumerking á efri ytri spássíu með svörtu bleki 1-10, síðari tíma viðbót.
Eitt kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift. Sami skrifari og AM 716 b 4to, AM 716 h 4to, AM 716 i 4to og AM 716 k 4to (sbr. Katalog II, bls. 133-135).
Stafir í upphaf erinda eru dregnir aðeins stærri.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Ígildi bókahnúts, lykkja og tveir punktar (bl. 5v).
Band frá 1978. Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saurblöð tilheyra nýju bandi.
Límmiði framan á og á kili með safnmerki.
Eldra band frá c1772-1780 varðveitt með handritinu. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til 17. aldar (sjá Katalog II, bls. 135).
Handritið var áður hluti af stærri bók. Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 716 b 4to og AM 716 h 4to.
Árið 1730 voru blöðin hluti af No. 716 in 4to (sbr. AM 456 fol., 27r-v; AM 477 fol., 48v-49r). Þá voru einnig eftirfarandi kvæði í No. 716 in 4to, sem eru ekki lengur til: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: „Sárt er sverð í nurum“, Harmagrátur, upphaf: „Einn Guð almáttugur“ og Hugræða, upphaf: „Einn og þrennur allsvaldandi herra“, öll með einni hendi, með settaskrift.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. maí 1985.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1978. Eldra band fylgir.