„Hér byrjast Rímur af Án bogsveigir“
„Frædid hef Eg Folke veitt ...“
„...hier skal frædid falla I strä, Fare þeir med sem lykar.“
Átta rímur.
Blaðsíðumerking á rektósíðum, með blýanti og svörtu bleki, 1-24.
Fjögur kver:
Óþekktur skrifari, kansellískrift. Sami skrifari og í AM 615 a 4to osfrv.
Fyrsti upphafsstafurinn, er blekdreginn skrautstafur (ca. 5 línur) með blómaskreytingu. Minni upphafstafir (2 línur) eru minna skreyttir.
Fyrirsagnir og fyrsta lína eru dregin hærri og eru smá skreytt.
Skreyting við eða umhverfis griporð. Þau eru skrifuð með fljótaskrift.
Jaðar blaða sýna leifar af rauðum lit.
Band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír, með prentað mál á spjaldblöðum. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með bleki. Tveir límmiðar eru á kili.
Laus seðill um forvörslu í Kaupmannahöfn, 1991.
Skrifað á Íslandi.
Handritið er tímasett til síðari helmings 17. aldar í Katalog II, bls. 24. Það hefur upprunalega verið hluti af stærri bók, sem innihélt AM 615 a-c 4to og Árni Magnússon tók í sundur.
Í handritinu voru áður Geiplur með sömu hendi, og Egils rímur Skallagrímssonar með annarri hendi. Sjá einnig AM 615 a og c 4to.
Árni Magnússon fékk úr bók frá Gísla Jónssyni í Mávahlíð 1709, en hana hafði Magnús Björnsson á Bassastöðum í Steingrímsfirði átt.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júní 1991.
Yfirfarið í Kaupmannahöfn í maí 1991.