Brot. Hálft bl. 5v með upphafi rímnanna en útstrikað.
Ein hönd.
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 19.
Það var hluti af sama handriti og AM 611 c 4to sem inniheldur Fortúnatus rímur.
Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 612 4to Rímur af Illuga kerlingarfífli, ortar af Þormóði Eiríkssyni í Gvendareyjum, sem nú vantar (tvö eintök, annað með fljótaskrift en hitt með settafskriftarhendi Jóns Sigurðssonar).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. febrúar 1984.
Tekið eftir Katalog II , bls. 19 (nr. 1568). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 5. september 2001.